Bjarni Sigurðsson - Kokkurinn á bak við myndavélina

 

 

Bjarni Sigurðsson sýndi ljósmyndir á sjöttu sýningunni í sýningarröðinni, Vestmannaeyjar í gegnum ljósopið mitt í Einarsstofu á laugardeginum 12. október kl. 13.00. Bjarni byrjaði snemma að taka myndir og þegar leiðin lá til Eyja heillaðist hann af þeirri veislu sem Vestmannaeyjar eru fyrir auga og ljósop. Hann tók því fagnandi og hefur verið duglegur að munda myndavélina eins og við sáum á laugardeginum.

 

Bjarni Sigurðsson var ráðinn yfirmatreiðslumaður á Sjúkrahúsinu í júní í sumar. Bjarni útskrifaðist frá Hótel- og veitingaskóla Íslands árið 1994 og lauk meistaraprófi árið 1999. Hann hefur rekið og starfað á veitingastöðum eins og Café Opera og Lækjarbrekku. Hann starfaði lengst á Menu Veitingum árin 2007- 2017 sem yfirmatreiðlsumeistari. Bjarni hefur einnig lokið námi í margmiðlun og ljósmyndun.

 

En kynnin af Vestmannaeyjum ná lengra aftur og segist Bjarni  vera giftur hingað. Kona hans er Kristjana Margrét og forleldrar hennar eru Hörður Þórðarson og Anna María Kristjánsdóttir. Hann tók við af Ævari Austfjörð en stóra áhugamálið er ljósmyndun. „Ég hef verið að taka myndir frá því ég var polli en tók mér pásu þegar maður lagði áherslu á að koma sér áfram í kokkastarfinu,“ sagði Bjarni sem ekki aðeins féll fyrir Eyjastúlkunni Kristjönu.

 

 

Fór alla leið

„Ég heillaðist strax af því sem Heimaey og Vestmannaeyjar allar hafa upp á að bjóða. Mér finnst ég líka ná lengra aftur því ég fæddist á fimmta degi í gosi 1973,“ sagði Bjarni og brosti.

 

Bjarni segist hafa verið polli þegar hann eignaðist fyrstu myndavélina og hann fékk strax bakteríuna. „Ég tók þetta alla leið, var algjör dellukarl, rúllaði upp filmur og gerði allt frá grunni. Hún varð svo dálítið löng pásan hjá mér þegar ég einbeitti mér að því að koma mér áfram í kokkaríinu. Svo breyttust aðstæður í vinnunni. Þurfti ekki að mæta fyrir hádegi og þá dreif ég mig í ljósmynda- og margmiðlunarnám í Iðnskólanum og hef ekki stoppað síðan.“

 

Hann lofaði fjölbreyttri sýningu en í myndum sínum leggur hann áherslu á liti og sterkar andstæður, einkum í svart-hvítum myndum sem fylgja með. „Áherslan hjá mér er að fanga litina í hversdagsleikanum og poppa þá upp. Ég vinn myndirinar í Photoshop en fer aldrei lengra en ég hefði komist í myrkraherberginu. Nákvæmlega eins og maður gerði í gamla daga þannig að myndirnar verða aldrei ýktar.“

 

 

Alltaf að læra

Þetta er hans fyrsta sýning og hann hlakkar til. „Ég hafði bæði gagn og gaman af náminu í Iðnskólanum en maður er alltaf að læra. Verður aldrei fullnuma og það er kannski það skemmtilega við ljósmyndun. En á laugardaginn fær fólk tækifæri til að sjá það sem ég hef verið að gera.“

 

Fjölskyldan keypti húsið af Finni teiknikennara í Búhamrinum sem nýtti bílskúrinn sem málverkastúdíó. „Við fáum húsið afhent fljótlega og bílskúrinn fær þá nýtt hlutverk, verður ljósmyndastúdíó. Þar verð ég með ljósin og bekkinn hans Óskars heitins Björgvinssonar, ljósmyndara sem starfaði hér í mörg ár.“

 

 

Það var spennandi að sjá það sem Bjarni hafði fram að færa, hvað hann sem aðkomumaður sér í náttúru Eyjanna.