Addi í London í Einarsstofu:

Góð mynd fær mann til að gleyma kulda og streði

 

 

Ísleifur Arnar Vignisson, Addi í London er ekki maður einhamur, hvort sem er í vinnunni eða þegar hann mætir með myndavélina, á einstaka viðburði eða til að fanga það fallega í náttúrunni og fuglalífinu þar sem lundinn er í sérstöku uppáhaldi. Hann byrjaði ungur að vinna í fiski og það  hefur hann gert alla tíð, lengst af sem verkstjóri sem eitt og sér er nægt verkefni. Addi lét það samt ekki stoppa sig þegar kom að því taka myndir og þær hafa farið víða um heim og hlotið viðurkenningar.

 

Addi var strax til í slaginn þegar hann var beðinn um að taka þátt í  sýningaröðinni, Vestmannaeyjar í gegnum ljósopið mitt sem hélt áfram í Einarsstofu á laugardeginum, 5. október kl. 13.00 Með honum var Sif Sigtryggsdóttir, Sif í Geisla. Var þetta fjórða sýningin.

 

 

Byrjaði meira í gamni en alvöru

„Ég byrjaði að fikta við ljósmyndun árið 1974 en þá er ég tvítugur,“ sagði Addi um fyrstu sporin. „Fyrst var þetta meira í gamni en alvöru en síðustu 30 árin hefur maður verið í þessu af fullum krafti. Byrjaði með filmuvélar eins og svo margir. Þá tók maður ekki nærri eins margar myndir og í dag. Það kostaði sitt að láta framkalla allar þessar filmur. Það breyttist svo með stafrænu tækninni þegar hægt var að taka eins margar myndir og maður vildi án þess að þurfa að hugsa um kostnað.“

 

Hann byrjaði að vinna í Fiskiðjunni hjá Lauga á Heiði 1975 og var orðinn verkstjóri í tækjunum 1976. „Ég tók myndir í Fiskiðjunni sem í dag eru alveg ómetanlegar. Þar má þekkja marga hrausta peyja sem voru óhræddir að taka til hendinni þegar sett var í tækin og svo slá úr þeim. Hörku vinna fyrir hörku menn.  Þegar Fiskiðjan sameinaðist Vinnslustöðinni fylgdi ég með í pakkanum og hef ég tekið mikið af myndum þar. Undanfarin ár hef ég tekið myndir m.a. fyrir Vinnslustöðina.“

 

 

Tekur tíma

Addi er víðar mættur með myndavélina og hefur hann m.a. tekið myndir fyrir ÍBV. „Ég hef tekið myndir á þjóðhátíð sem ÍBV hefur notað í Þjóðhátíðarblaðið undanfarið tíu til fimmtán ár. Einnig hef ég tekið myndir af fótboltaleikjum. Ekki má gleyma yngri flokka mótunum, TM mótinu og Orkumótinu þar sem kraftur, leikgleði og einlægni krakkanna koma fram í hverri einustu mynd.“

 

Addi sagði að baki góðri mynd liggi miklu meiri vinna en flestir geri sér grein fyrir.  „Á þjóðhátíð getur það tekið rosalegan tíma að sitja uppi á fjalli til að ná öðru sjónarhorni á flugeldasýninguna og blysin. Það tekur á en ánægjan mikil þegar vel tekst til.“

 

Sennilega hafa fáir eða engir tekið fleiri myndum af Smáeyjum en Addi í London og ástæðan er einföld. „Þær blasa við út um stofugluggann hjá okkur og ég hef myndað þær meira en margt annað. Ef maður sér eitthvað sérstakt, sólarlag eða annað þarf maður að vera fljótur út því þetta er svo fljótt að breytast.“

 

 

Náttúran heillar

Og þær eru margar klukkustundirnar sem liggja að baki fuglamyndunum hjá Adda sem sumar eru hreint frábærar. „Náttúran hér í Eyjum heillar og þá ekki síst fuglarnir þar sem lundinn er sá sem stendur upp úr. Við Heiðar Egils höfum farið magrar ferðir saman til að taka myndir af lundum og sólsetrinu. Mér finnst einna skemmtilegast þegar pysjan er að koma úr holunum á haustin. Þá eru foreldrarnir að passa upp á þær. Einnig fylgdist ég með í sex kvöld í röð sem var einstök upplifun.

 

Þetta gerist helst í ljósaskiptunum og þá nota ég oftast flass en það virðist ekki hræða lundann. Hann stendur hinn rólegasti og lætur eins og ekkert sé.  Allt tekur þetta mikinn tíma og ef maður er heppinn nást nokkrar góðar myndir, kannski þrjár til fjórar og þá gleymist allt streðið, kuldinn og annað sem fylgir því að hanga undir kletti í marga klukkutíma,“ sagði Addi.

 

Gott framtak

Hann var ánægður með það tækifæri sem ljósmyndarar í Vestmannaeyjum fengu með sýningarröðinni í Einarsstofu. „Mér finnst þetta bæði gott framtak, líka jákvætt og skemmtilegt. Sjálfur hef ég haldið tvær einkasýningar og tekið þátt í þremur samsýningum. Ég hlakka til laugardagsins og verð með sitt lítið af hverju af því sem ég hef verið að gera í gegnum árin,“ sagði Addi sem hefur sent nokkrar myndir erlendis sem vakið hafa mikla athygli.

 

Það var spennandi að sjá það sem Addi sýndi okkur í Einarsstofu kl. 13.00 á laugardeginum.