Ljósopið – Handbolti , fótbolti, brim, björgin og fjaran

 

 

Ingi Tómas Björnsson, fyrrum skattsjóri var áberandi á bæði handbolta- og fótboltaleikjum meistaraflokka ÍBV á árunum um og upp úr 1986. Vopnaður flottri myndavél og öflugum linsum og slatta af þolinmæði náði hann frábærum myndum sem eru ómetanlegar í dag því þarna var lagður grunnur að því stórveldi sem ÍBV er í handboltanum í dag. Ingi Tómas sýndi myndir eftir sjálfan sig og Friðrik Jesson, tengdaföður sinn sem skildi eftir sig merkilegt safn mynda frá fyrri hluta síðustu aldar.

 

En Ingi Tómas myndaði ekki bara íþróttir eins og við fengum að sjá í Einarsstofu á laugardeginum. Þar með var sleginn botninn, allavega að sinni, í sýningarröðinni Vestmannaeyjar í gegnum ljósopið mitt. „Ég verð með myndir sem ég hef tekið í fuglabjörgum, í úteyjum og myndir sem ég hef tekið hingað og þangað á Heimaey. Fjaran er vinsæl hjá mér, sama hvort það er Prestavík, Brimurðin, Klaufin eða hvar sem er,“ sagði Ingi Tómas.

 

 

Brimið heillar hann líka. „Ég hef alltar heillast af brimi sem kemur vel á vondan því tilraunir til að gera mig að trillukalli á yngri árum misheppnuðust algjörlega. Í hvert skipti sem var látið reka varð ég sjóveikur og ældi eins og múkkinn en þegar ég er að mynda brim hef ég fast land undir fótum þó átökin séu mikil.“

 

Er AKP

Ingi Tómas sagðisrt hafa snemma byrjað að taka myndir austur á Norðfirði þar sem hann ólst upp. „Ég á myndir sem ég tók fyrir austan á Kodak Brownie, kassamyndavél sem reyndist mér vel. Seinna eignaðist ég aðeins betri vél  sem ég notaði í nokkur ár. Þegar ég var í MA á Akureyri lærði ég að framkalla og kópera. Var í hóp sem kallaður var FÁLMA, Félag áhugaljósmyndara í MA.“

 

Ingi Tómas sagðiað það hafi komið mislöng hlé í ljósmyndaferilinn en hann tók kipp þegar hann eignaðist góða vél árið 1986. „Það var fyrsta Canon vélin mín, filmuvél og lagðist ég í handboltann og fótboltann. Tók nokkur ár í það, allt á filmur. Þegar ég eignaðist mína fyrstu stafrænu vél var hún sú fyrsta með autófókus. Það var árið 2006 en fram að því varð ég sjálfur að finna rétta fókusinn. Núna er ég kominn með þriðju stafrænu vélina. Hef alltaf haldið mig við Canon og sú nýjasta er MK 4.“

 

 

Ingi Tómas sagðist vera AKP og því nái myndir sem hann sýnir á laugardaginn ekki svo langt aftur. „En þetta verður sitt líítið af hverju og sýnir það sem ég hef verið að gera í ljósmyndum eftir að ég tók upp þráðinn hér í Vestmannaeyjum.“

 

Sýningin hófst eins og venjulega klukkan 13.00 á laugardaginn 14. desember  í Einarsstofu. Og þó Ingi Tómas sagðist ekki spanna langt tímabil bættitengdapabbinn það upp því til eru myndir eftir hann frá 1923. Þannig að það varð úr spennandi sýning sem vert var að kíkja á.