Ljósmyndasýning í Einarsstofu - Bragi Þór Jósefsson

03.08.2023

Ljósmyndasýning  í Einarsstofu

 

Bragi Þór Jósefsson ljósmyndari hefur myndað allar útisundlaugar á landinu úr lofti og gaf nýlega út á bók undir nafninu 100 sundlaugar.  

 

Í dag, fimmtudaginn 3. ágúst mun hann opna ljósmyndasýningu með úrvali mynda úr bókinni í Einarsstofu, Safnahúsi Vestmannaeyja og verður Bragi á staðnum milli kl. 16 og 19.  

 

Sýningin stendur fram til 24. ágúst.  

 

Sundlaugar hafa gjarnan áberandi form og áhugavert er að skoða og bera saman form hinna ýmsu lauga úr lofti og velta fyrir sér hvernig formin og hverfi lauganna hafa breyst í áranna ráð.

 

Áhugaverð og spennandi sýning sem við hvetjum alla til að kynna sér.