Dagskrá Safnahelgar 2019 uppfært

12.11.2019

 

Dagskrá Safnahelgar 7.-17. nóvember 2019

uppfært

 

Fimmtudagur 7. nóvember kl. 17:00 í Einarsstofu, Safnahúsi. Lista- og menningarfélag Vestmannaeyja opnar samsýninguna Í anda Júlíönu Sveinsdóttur. Félagið verður með opið hús að Strandvegi 50 (Hvíta húsinu) helgina 9.-10. nóv. kl. 16:00-18:00.

 

Fimmtudagur 7. nóvember kl. 18:00 í Stafkirkju. Setning Safnahelgar.

 

Föstudagur 8. nóvember kl. 17:00 í Einarsstofu, Safnahúsi. Úr safni Sigurgeirs ljósmyndara. Sigurgeir frá Skuld sýnir valdar listrænar myndir og Helga Hallbergsdóttir fer yfir syrpu hans af verkefninu Hraun og menn.

 

Laugardagur 9. nóvember kl: 12 í Einarsstofu, Safnahúsi. Súpa í boði Söguseturs 1627.

 

Laugardagur 9. nóvember kl: 12:30 í Einarsstofu, Safnahúsi. Bjarni Harðarson skrifar undir samning við Sögusetur 1627 um útgáfu á Reisubók sr. Ólafs Egilssonar.

 

Laugardagur 9. nóvember kl: 13 í Einarsstofu, Safnahúsi. Bjarni Harðarson kynnir nýjar bækur hjá Sæmundarútgáfunni. Harpa Rún Kristjánsdóttir og Guðjón Ragnar Jónasson lesa úr nýjum bókum sínum.

 

Laugardagur 9. nóvember kl. 14:30 í Einarsstofu, Safnahúsi. Guðrún Bergmann fjallar um 5 einfaldar leiðir til að bæta heilsuna og kynnir nýjustu bók sína BETRA LÍF fyrir konur á besta aldri.

 

Laugardagur 9. nóvember kl. 16:00 í Hvítasunnukirkjunni, stóra salnum: Lúðrasveit Vestmannaeyja með hátíðartónleika í tilefni af 80 ára afmælis sveitarinnar.

 

Sunnudagur 10. nóvember kl. 13:00 í Einarsstofu, Safnahúsi. Hörður Baldvinsson, safnstjóri Sagnheima segir frá för fimm Eyjamanna á Ólympíuleikana í Berlín 1936.

 

Sunnudagur 10. nóvember í Sagnheimum, Safnahúsi. Að loknu erindi Harðar er opnuð sýning á myndum og fleiru sem tengist för þeirra. Voru Eyjamennirnir fimm í hópi 50 Íslendinga sem fóru á þessa frægustu Ólympíuleika allra tíma.

 

Föstudagur 15. nóvember kl. 17:00 í Einarsstofu í Safnahúsi. Vestmannaeyjar í gegnum ljósopið mitt. Á þessari 10. ljósmyndasýningu sýna Jói Myndó, Sigmar Pálmason (Bói Pálma) og Halldór Sveinsson.

 

Föstudagur 15. nóvember kl. 20:30 í Eldheimum. Halldór Einarsson (Henson) kynnir nýja bók sína.

 

Laugardagur 16. nóvember kl. 11:00 í Einarsstofu, Safnahúsi. Sigurgeir Jónsson kynnir nýja bók og sýndar verða teikningar Sunnu Einarsdóttur sem myndskreytti bókina. Tónlistaratriði á vegum Tónlistarskóla Vestmannaeyja.

 

Laugardagur 16. nóvember kl. 13:00 í Einarsstofu, Safnahúsi. Ragnar Jónsson á Látrum fjallar um spíramálið í Vestmannaeyjum á þjóðhátíð 1943.

 

Laugardagur 16. nóvember í Sagnheimum, Safnahúsi. Að loknu erindi Ragnars fjallar Ragnar Óskarsson um Sigríðarslysið.

 

Laugardagur 16. nóvember kl. 14:00 í húsnæði Sea Life Trust. Ásrún Magnúsdóttir kynnir og les upp úr nýrri bók sinni Ævintýri Munda lunda.

 

Sunnudagur 17. nóvember kl. 13:00 í Náttúrugripasafni við Heiðarveg. Njáll Ragnarsson formaður bæjarráðs opnar sýningu á munum safnsins, fugla- og steinasafni, og Hörður Baldvinsson fjallar um sögu safnsins. Djúpið opnar sýninguna Fast þeir sóttu sjóinn.

 

Framundan:

 

Sunnudagur 24. nóvember kl. 13:00 í Landakirkju. Sameiginleg messa allra söfnuða í Vestmannaeyjum.

 

Sunnudagur 1. desember kl. 20:00 í Eldheimum. Katrín Halldóra og Pálmi Sigurhjartarson með Ellý og fleira.

 

Opnunartími safnanna um Safnahelgi:

 

Sagnheimar, byggðasafn: Opið laugardaga og sunnudaga kl. 13-16. Ókeypis aðgangur.

 

Eldheimar: Opið alla daga kl. 11-17.

 

Sea Life Trust: Opið alla daga kl. 13-16.