Önnur lota í ljósmyndasýningu Sigurgeirs í Viskusalnum

Margbreytilegt listalíf í hálfa öld

23.03.2016
 Sigurgeir Jónasson ljósmyndari verður með  sýningu á yfir 200 rúllandi ljósmyndum á stóru tjaldi  í  Viskusalnum á jarðhæð Strandvegs 50 mánudaginn 28. mars nk. - öðrum í páskum kl. 15.00.   Kári Bjarnason og Arnar Sigurmundsson munu verða Sigurgeir til aðstoðar eins og síðast  og  gestir munu einnig leggja orð  í belg.  Að þessu sinni verður farið yfir liðlega 200 ljósmyndir á stóru sýningartjaldi  og  tengjast þær  listalífinu í Eyjum í hálfa öld - fyrir og eftir gos- .
Einstaklingar í myndlist, tónlist, kvikmyndum og  menningu koma þar við sögu.  Í kaffiihléi mun þeir félagar Árni Johnsen og Sigurmundur Gísli Einarsson, -Simmi - taka nokkur  Eyjalög.   Að því loknu verður sýndur 12 mínúta bútur úr  kvikmynd Páls Steingrímssonar og Ernst Kettlers, sem ekki var lokið við,  en sögusviðið er Vestmannaeyjar fyrr á öldum á  tíma áraskipanna. 
Reiknað er með að myndasýningin taki 60 mínútur  og kaffið, tónlistin og kvikmyndandabúturinn  samtals um 30 mínútur og öllu verði lokið um kl. 16.30. Á fyrstu myndasýningunni á þessu ári voru gestir liðlega 80 talsins - fullur salur-  en nú hefur verið bætt við nýjum stólum til að það fari sem best um gesti.