Til þess var það of skemmtilegt og sú stemming verður ekki endurtekin með neinu móti.
Hrekkhjalómafélagið verður ekki, frekar en hrekkirnir, endurtekið eða endurvakið.
18.11.2015" Ég hef lengi gengið með þá hugmynd í kollinum að skrifa bók um Hrekkjalómafélagið í Eyjum", sagði Ásmundur Friðriksson alþingismaður þegar Fréttir slógu á þráðinn til hans og spurðum hann um nýju bókina sem hann var að senda frá sér. Bókin heitir Hrekkjalómafélagið , Prakkarastrik og púðurkerlingar.
Bókina tileinkar Ásmundur þremur Hrekkjalómum sem létust allir langt fyrir aldur fram en þeir eru Georg Þór Kristjánsson , Logi Snædal Jónsson og Guðjón Róbert Sigurmundsson.
Ásmundur segir að allt svona sprell og gleði taki enda og eðlilega eftir 20 ár af endalausum hugmyndum og framkvæmdum þeirra. Við áttum í raun ekkert eftir til að hrekkja og við vorum búnir að klára hrekkjalómakvótann.