Öflugar Eyjakonur og farandssýning Kvenréttindafélags Íslands.
02.09.2015Dagskráin hefst kl. 13:30 í kirkjugarði Landakirkju þar sem blóm verða lögð á leiði Kristínar og Unu og jafnframt verður nýr steinn afhjúpaður við leiði Unu. Dagskránni verður framhaldið kl. 14:30 í Einarsstofu í Safnahúsi.
· 14:30 Dagskrá í Einarsstofu.
· Páll Halldórsson varaformaður BHM og langömmubarn Unu: Skáldið og grasakonan.
Kristín Ástgeirsdóttir framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu og langömmubarn Kristínar: En amma hafði á öldunni gát.
· Kristín Ástgeirsdóttir opnar farandssýningu Kvenréttindafélags Íslands: Veggir úr sögu kvenna.
· Unnur Arndísardóttir og Jón Tryggvi Unnarsson flytja tónlist.
Kaffi og meðlæti á borðum.
Eftirtaldir aðilar hafa styrkt verkefnið og dagskrána:
Kvenréttindafélag Íslands, Safnaráð, Sparisjóður Vestmannaeyja, Landakirkja, Miðstöðin, Vestmannaeyjabær.
Allir hjartanlega velkomnir.