Ragnar Engilbertsson níræður
15.05.2014Fyrsti heiðurslistamaður Vestmannaeyja, Ragnar Engilbertsson, er 90 ára í dag. Í tilefni af því opnum við, í Einarsstofu, sýningu á úrvali vatnslitamynda eftir hann.
Sýningin er opin á opnunartíma Safnahúss fram að Uppstigningardegi.
Um sölusýningu er að ræða og eru allir hjartanlega velkomnir.
Í tilefni af afmælinu og sýningunni var birt viðtal við listamanninn í Eyjafréttum í dag.