Lokadaginn 11. maí kl. 14

Þjóðbúningadagur í Sagnheimum, byggðasafni

08.05.2014
Mikið er um að vera á lokadeginum í Sagnheimum.
Útskrift Visku og Annríkis í þjóðbúningasaum. Nemendur skarta búningum sínum og eru gestir hvattir til að gera slíkt hið sama.
Sýndir verða búningar úr eigu Annríkis og Sagnheima.
Guðrún Hildur og Ásmundur frá Annríki verða einnig á safninu laugardaginn 10. maí kl. 13 - 15. Á þeim tíma geta bæjarbúar komið með gamla búninga og fengið leiðbeiningar.
 
Verið hjartanlega velkomin!