Ljósmyndadagur í Ingólfsstofu

20.03.2014
 Ljósmyndadagar hafa verið í Ingólfsstofu alla fimmtudaga frá 13:00-16:00 í vetur og greinilegt að þessi dagskrá er að festa sig í sessi.
Margir gestanna hafa mætt reglulega í allan vetur en stöðugt bætist í gestafjöldann. Starfsmenn Safnahúss hvetja alla sem áhuga hafa á gömlum ljósmyndum frá Eyjum að kíkja við og hjálpa til við að nafngreina fólk, atburði og staði á myndunum og eiga um leið skemmtilega stund í góðum félagsskap og notalegu umhverfi.
Það eru öllum velkomið að kíkja við á Ingólfsstofu.