Bókasafnið komið á Facebook

06.03.2014
 Nú er Bókasafn Vestmannaeyja komið á facebook.
Starfsfólkið stefnir á að vera þar með daglegan fréttaflutning af ýmsu í starfsemi safnsins. 
Þar verða viðburðir Safnahúss auglýstir og myndir af þeim birtar, við munum auglýsa komu nýjustu bókanna þegar við á, umfjallanir um hópaheimsóknir og myndir af því og ýmislegt fleira. Facebook vinum okkar er velkomið að senda þar inn fyrirspurnir og í flestum tilfellum verður þeim svarað, í síðasta lagi, næsta virka dag.
Til gamans má geta þess að vinir Bókasafnsins á facebook eru 195 sem er frábær árangur á aðeins einni viku - það væri samt skemmtilegt að eiga fleiri vini og því langar okkur að biðja alla velunnara Safnahúss að auglýsa síðuna okkar og deila henni út um allt :)