Auglýst er eftir starfsmanni á Bókasafni Vestmannaeyja

23.01.2014
Um er að ræða 50% stöðu með mögulegri aukningu á starfshlutfalli á árinu 2014. Starfið krefst ekki sérstakrar menntunar en starfsmaðurinn þarf að hafa góða þjónustulund og vera lipur í mannlegum samskiptum. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.  
Umsóknarfrestur er til 31. janúar n.k. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að senda umsóknir á Bókasafn Vestmannaeyja
b.t. Kára Bjarnasonar
Ráðhúströð
900 Vestmannaeyjum
 
eða á netfangið kari@vestmannaeyjar.is
 
Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar. Allar nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 488-2040