Trollað á Þórunni Sveinsdóttur VE

12.12.2013
Sagnheimar, byggðasafn eiga marga velunara innan sjómannastéttarinnar og er áhöfnin á Þórunni Sveinsdóttur VE þar engin undantekning. Er þeir komu í land þ. 5. desember s.l. voru þeir auk hefðbundis afla með skipsklukku og bút af torkennilegum hlut (spil?) sem þeir fengu í trollið á Breiðamerkurdýpi. 
Viðar Sigurjónsson vissi ekki til þess að nokkurt skipsflak væri merkt nákvæmlega þarna og við fyrstu skoðun er ekki hægt að sjá neitt nafn á klukkunni. Freistandi er að álykta að klukkan og búturinn séu úr sama skipi. Haft verður samband við forverði Þjóðminjasafns um aðstoð við frekari greiningu á þessum spennandi fundi.