milli kl. 14:00 og 15:00

Ljósmyndasýning á Hraunbúðum

21.10.2013
 Þriðjudaginn 22. október ætlar Hrefna Valdís, starfsmaður Ljósmyndasafns Vestmannaeyja, að vera með sýningu á ljósmyndum úr safni Kjartans Guðmundssonar og fleiri fágætum.
Myndasýningin verður í salnum við matsalinn og eru allir velkomnir.
Ljósmyndasafn Vestmannaeyja hefur undanfarin ár leitað eftir aðstoð íbúa í Vestmannaeyjum með að nafngreina og útskýra fólk og aðstæður á ljósmyndum í fórum safnsins.  
Þessi vinna hefur gengið vonum framar en nóg er eftir enn af ógreindu myndefni.
Starfsfólk Safnahúss hvetur alla sem vettlingi geta valdið að leggja sitt af mörkum við myndgreiningu fyrir Ljósmyndasafn Vestmannaeyja.