Opnar fimmtudaginn 17.október kl. 17

Sýning Soffíu Björnsdóttur í Einarsstofu

17.10.2013
Um er að ræða fyrstu einkasýningu Soffíu og er ekki oft sem listamaðurinn bíður til áttræðs að koma fram með þessum hætti. Myndirnar sem sýndar verða að þessu sinni eru í einkaeign og því er ekki um sölusýningu að ræða, heldur yfirlitssýningu.
Flestar myndanna eru vatnslita- og olíumyndir sem eru málaðar á námskeiðum hjá Steinunni Einarsdóttur á undanförnum árum. Að meginstofni er um að ræða það sem kalla má sannar Eyjamyndir þar sem náttúran og umhverfið í Eyjum leika lykilhlutverk.
Sýningin opnar sem fyrr segir kl. 17 fimmtudaginn 17. október í Einarsstofu og verður boðið upp á kaffi og konfekt.