Ljósmyndadagur

03.10.2013
 Með vetraropnun á Bókasafni Vestmannaeyja bjóðum við að nýju uppá ljósmyndadag í Safnahúsinu alla fimmtudaga kl. 13 - 16. 
Sem fyrr biðjum við bæjarbúa að aðstoða okkur við að nafngreina einstaklinga á myndum úr söfnum Óskars Björgvinssonar og Kjartans Guðmundssonar. Viðtökur voru afar góðar í vetur er leið og þökkum við hjartanlega fyrir áhugann. Enn eru þó fjölmargar myndir sem ekki hafa verið nafnkenndar og birtist ein slík hér með tilkynningunni.
Jafnframt minnum við á laugardagsopnun á Bókasafninu kl. 11 - 14 frá 1. okt.