Heppinn þátttakandi fær bókaverðlaun frá Eymundsson

Bókaverðlaun barnanna

12.09.2013
Nú stendur yfir á Bókasafninu kosning á bestu barnabókinni sem út kom á árinu 2012. 
Almennings og skólabókasöfn landsins verðlauna árlega eina frumsamda barnabók og eina erlenda barnabók sem börn á aldrinum 6 - 12 ára hafa kosið besta.
Á Bókasafninu er veggspjald með öllum barnabókunum sem út komu á Íslandi árið 2012 og um að gera fyrir alla lestrarhesta að koma og rifja upp hvaða bók var best í fyrra.
 
 
Lokadagur til að taka þátt í kosningunni er fimmtudagurinn 19. september og þegar búið verður að fara yfir kjörseðlana verður einn heppinn þátttakandi dreginn út og hlítur sá bókagjöf frá Eymundsson í Vestmannaeyjum.