Gull úr fórum bæjarbúa

13.06.2013
Listvinir Safnahúss vilja þakka þeim fjölmörgu bæjarbúum sem lánað hafa listaverk til sýninga í Einarsstofu undanfarna laugardaga.
Undanfarna laugardaga höfum við sýnt á sjötta tug verka og ævinlega mætt sama velvilja og aðstoð.
Í október er ætlunin að taka upp þráðinn að nýju og eru þeir bæjarbúar sem eiga listaverk sem þeir eru tilbúnir að sýna einn dag beðnir að hafa samband við starfsmenn Safnahúss eða eithvert okkar undirritaðra.
 
Steinunn Einarsdóttir
Jói listó
Kári Bjarnason
Stefán Gíslason
Þorkell Sigurjónsson