Dagskrá þrettándahátíðar álfa, trölla og jólasveina

27.12.2012
Dagskrá Þrettándahelgarinnar í Vestmannaeyjum er stórglæsileg að vanda og margir viðburðir í Safnahúsinu.
Tveir fyrir einn á öll söfnin og frítt fyrir börnin.
 
Fimmtudagur 3. janúar 2013
 
Kl. 17.00 – Anddyri Safnahúss
Opnun á ljósmyndasýningu Óskars Péturs og gesta.
Jafnframt formleg opnun á nýrri heimasíðu Óskars Péturs. 
 
Kl. 21.00 „Blítt og létt“ Eyjakvöld á Kaffi Kró
 
Kl. 22.00  Jón Jónsson tónleikar í Höllinni
 
 Föstudagur 4. janúar 2013
 
14.00 – 16.00  Diskó - grímuball Eyverja í Höllinni
Jólasveinninn mætir og aðrar fígúrur einnig. Verðlaun verða veitt fyrir búninga og öll börn fá glaðning frá Eyverjum og nammipoka frá jólasveininum.  
 
19.00  Hin eina sanna Þrettándagleði  ÍBV
(Flugeldasýning, blysför, álfabrenna, jólasveinar, tröll og m.fl.)
 
00.00  Þrettándaball – Brimnes og Eyþór Ingi í Höllinni
Land og synir leika fyrir dansi.
 
 
Laugardagur 5. janúar 2013
 
13.00 til 17.00:  Langur laugardagur í verslunum
 
Tröllatilboð og álfaafslættir í fjölda verslana og veitingastöðum  bæjarins
 
11.00 til 15.00: Tröllagleði í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja.
Fjölskylduleikir í öllum íþróttasölum undir stjórn íþróttaþjálfara , allir íþróttasalir opnir.
Fjölbreyttar þrautir í umsjón Írisar Sæmundsdóttur og íþróttafélaganna.
Leikfélag Vestmannaeyja sér um andlitsmálun
 
Einstök skemmtun fyrir börn og fullorðna.
 
14.00 – 16.00
Opið hús í Slökkvistöð Vestmannaeyja.  Tæki og tól m.m.til sýnis.
 
13.00 – 16.00  Opið á  Náttúrugripasafni
 
13.00 – 16.00  Jólaratleikur á Byggðasafninu
 
13.00 – 16.00 Opið á Surtseyjarstofu
 
15.00  Barnaleikrit – Allra, allra langbesta jólaleikrit allra tíma!
            Leiksýning í Bæjarleikhúsinu
 
21.00  Ljós í leikhúsi – stórtónleikar Leikfélags Vestmannaeyja
           Brot af því besta frá  fyrri tónleikum og söngleikjum.
Sunnudagur 6. janúar 2013
 
13.00  Álfar og tröll í Eyjum - Upplestur og sögur í Bókasafni Vestmannaeyja
 Valdar þjóðsögur, jólakötturinn m.m. Fríða Sigurðar, Zindri Freyr og fl. lesa og leika.
 
 
14.00  Þrettándamessa í Stafkirkjunni.  Séra Kristján Björnsson. Védís Guðmundsdóttir leikur á flautu, Guðmundur H. Guðjónsson á píanó.
 
 
15.00  Barnaleikrit – Allra, allra langbesta jólaleikrit allra tíma!
            Leiksýning í Bæjarleikhúsinu
 
 
Einsi kaldi verður með ómótstæðilegt 13ándatilboð
 
Ljósmyndasýning Óskars Péturs er opin alla helgina frá 13.00 – 16.00
 
Aðgangseyrir á söfnin: Tveir  fyrir einn og frítt fyrir börn
 
ATHUGIÐ!  Ef veður á föstudeginum er óhagstætt frestast þettándaganga til laugardags, sem og þrettándaballið. 
Tónleikar Leikfélagsins færast þá fram um einn dag og verða á föstudagskvöldinu.
 
 
 
Undirbúningsnefndin áskilur sér rétt til breytinga.