Laust starf á Bókasafninu.
08.11.2012Auglýst er eftir starfsmanni á Bókasafni Vestmannaeyja.
Um er að ræða 75% stöðu. Starfið krefst ekki sérstakrar menntunar en starfsmaðurinn þarf að hafa góða þjónustulund og vera lipur í mannlegum samskiptum. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til 18. nóvember n.k. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að senda umsóknir á Bókasafn Vestmannaeyja, b.t. Kára Bjarnasonar, box 20, 900 Vestmannaeyjum. Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar. Allar nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 488 2040.