Jólaföndur

24.10.2012

Í dag eru réttir 2 mánuðir til jóla og því tímabært fyrir þá sem ætla að föndra jólaskraut eða jólagjafir að fara að huga að því.

Starfsfólk Bókasafnsins er búið að taka fram jóla-föndur blöð og bækur og má búast við að nýjar bækur bætist þar við fljótlega.

Jólabókaflóðið er einnig byrjað og eru t.d. Árni Þórarinsson, Einar Kárason, Kristín Marja Baldursdóttir og Stefán Máni öll búin að gefa út sínar jólabækur og starfsfólk safnsins er byrjað að taka niður pantanir.