Sumarlestrinum líkur á morgun

30.08.2012

og því þurfa allir bókaormarnir okkar að skila til okkar lestrarhestunum á morgun föstudaginn 31.ágúst.

Nú eru skólarnir byrjaðir og því tími til að hætta í sumarlestrinum. Allir sem hafa tekið þátt í sumar þurfa að skila lestrarhestunum í dag eða á morgun föstudaginn 31.ágúst.
Við þurfum svo einhvern tíma til að fara yfir þetta og skoða hvað þið hafið verið dugleg að lesa í sumar en þegar því er lokið mun forstöðumaður Bókasafns Vestmannaeyja Kári Bjarnason heimsækja ykkur í skólann og veita ykkur viðurkenningu.