Böðvar Guðmundsson rithöfundur í Einarsstofu Safnahúss
22.08.2012sunnudaginn 26.ágúst kl. 14.
Af öðrum góðum gestum þennan dag má nefna Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, Atla Ásmundsson aðalræðis-mann Íslendinga í Kanada og Þórð Tómasson í Skógum sem kynnir nýja bók sína, Liðna Landeyinga.
Böðvar Guðmundsson er ef til vill best þekktur fyrir sögur sínar um örlög fólks af fyrstu og annarri kynslóð Vestur-Íslendinga sem oft eru kallaðar Vesturfarasögur. Sögurnar voru síðar færðar í sviðsbúning og settar upp í Borgarleikhúsinu leikárið 2004 - 2005.Böðvar fékk Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 1996 fyrir skáldsöguna Lífsins tré, sem er sjálfstætt framhald Híbýla vindanna en auk þess liggur eftir hann fjöldi skáldsagna, ljóðabóka, leikrit og þýðingar.
Allir velkomnir Aðgangur ókeypis
Dagskráin er hluti af afmælisdagskrá Safnahúss og er styrkt af Vestmannaeyjabæ og Menningarráði Suðurlands.