Tyrkjaránsdagar fimmtudaginn 19.júlí

18.07.2012
Í tilefni þess að 385 ár eru liðin frá Tyrkjaráninu efnir Sögusetur 1627 til sögugöngu og dagskrár fimmtudaginn 19.júlí
 
Dagskrá:
18:00 Ferðir úr Safnahúsi í Brimurð.
18:15 Söguganga um slóðir Tyrkjaránsins með Ragnari Óskarssyni
19:30 Dagskrá við Skansinn.
          Leikdagskrá á vegum Leikfélags Vestmannaeyja.
          Stutt frásögn úr Reisubók sr. Ólafs.
          Súpa
20:00 Skotið úr fallbyssu við dagskrárlok.
 
Þeim sem þess óska verður ekið aftur í Brimurðina að sækja bíla sína í dagskrárlok.
Dagskráin er styrkt af Menningarráði Suðurlands.