Sumaropnun í Sagnheimum 12.maí

10.05.2012
Undirbúningur sumaropnunar er nú á fullu.  Góður gestur kemur frá Síldaminjasafni Íslands á Siglufirði, Rósa Margrét Húnadóttir þjóðfræðingur,
og fjallar um sjómannalög í erindi sínu ,,Draumur hins djarfa manns: frá sjómannalögum til gúanórokks.“

Um erindi sitt segir Rósa: 

Sjómannalögin voru órjúfanlegur partur af dægurlagaflóru Íslendinga á vissu tímabili. Tónlistin átti sitt blómaskeið á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar en upp úr því varð breyting á umfjöllun slíkra laga um sjómannslífið. Breytingarnar kallast á við breytingar samfélagsins og þá hröðu þróun og tækniframfarir sem urðu í íslenskum sjávarútvegi upp úr miðri 20. öld. Hér er því ekki aðeins um umfjöllun um dægurtónlist að ræða heldur greiningu á því samfélagi sem hún sprettur upp úr.