Samkeppni um nýtt merki (logo)

Bókasafn Vestmannaeyja 150 ára

17.04.2012

Vegna eindreginna óska hefur frestur til að skila inn tillögum að merki Bókasafns Vestmannaeyja verið framlengdur til 1. maí nk. Vegna fyrirspurna skal tekið fram að ekki er nauðsynlegt að tillagan taki mið af afmæli safnsins, enda þótt afmælisárið gefi okkur tilefni til að eignast loksins merki fyrir safnið. Verðlaun verða veitt fyrir vinningsmerkið sem verður afhjúpað á afmælishátíð Bókasafnsins 30. júní nk.

Tillögur berist til Kára Bjarnasonar forstöðumanns safnsins eða til Kristínar Jóhannsdóttur í Ráðhúsinu. Þau gefa einnig allar nánari upplýsingar í s. 488 2000