Langa safnahelgin í Eyjum 3. - 7. nóvember 2011

26.10.2011
Hér má sjá glæsilega dagskrá Safnahelgarinnar í Vestmannaeyjum.
Fimmtudagur 3. nóv.
Kl. 21.00 Kaffi Kró
Eyjakvöld – úrval tónlistarmanna leika og syngja Eyjalögin.
 
Föstudagur 4. nóv.
18.00  Stafkirkjan – setning hátíðar.
Kitty Kovács, Balázs Stankowsky og Sólveig Unnur Ragnarsdóttir flytja lög úr tónlistararfi Vestmannaeyja.
18.30 Svölukot
Júníus Meyvant opnar myndlistarsýningu.
20.30  Fiska- og náttúrugripasafn
„Dregið upp úr djúpunum.“ Opnun sýningar á teikningum Jóns Baldurs Hlíðberg.
 
Laugardagur 5. nóv.
Safnahús
13.00  Opnun á myndlistarsýningu  Brynhildar Friðriksdóttur.
Kynning á nýjum  bókum. Gunnar Helgason „Víti í Vestmannaeyjum“,   Þorbjörg Marinósdóttir, Tobba, „Lýtalaus“ og  Viðar Hreinsson „Eldhugi við ysta haf“. Ævisaga sr. Bjarna Þorsteinssonar. Eftir upplestur Viðars munu Kitty Kovács og Balázs Stankowsky flytja lag úr íslensku tónlistarhandriti er ritað var í Eyjum 1742 og var í eigu sr. Bjarna.
14.00 „Oddgeir Kristjánsson - minningin og tónlistin lifir.“  Sýning og tónlist  í tilefni af 100 ára fæðingarafmæli tónskáldsins ástsæla.
15.00 Bæjarleikhúsið- Ronja ræningjadóttir - frumsýning.
15.00 Landakirkja – Kirkjukór Hvolsvallar undir stjórn Guðjóns Halldórs Óskarssonar og  Kirkjukór Landakirkju undir stjórn Kitty Kovács. Undirleikur Kitty Kovács og Balázs Stankowsky.
17.00 Betel / Gamla höllin
Styrktartónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja.
20.00  Surtseyjarstofa
Kynning á nýjum bókum. Guðmundur Andri Thorsson og Hallgrímur Helgason.
21.00  Vinaminni
Tríó Glóðir flytja. Hafsteinn Þórólfsson söngvari, Jón Gunnar Biering Margeirsson gítarleikari og Ingólfur Magnússon bassaleikari.
 
Sunnudagur 6. nóv.
Kl. 13.00 Blóm lögð á leiði Oddgeirs Kristjánssonar í kirkjugarði Vestmannaeyja.
Kl. 14.00 Messa í Landakirkju. Minning látinna. Lög eftir Oddgeir og íslensk og erlend þjóðlög.
Kl 16.00   Kaffi Kró
Vinjettuhátíð. Valinkunnir heimamenn lesa upp úr verkum Ármanns Reynissonar ásamt höfundi. Unnar Gísli Sigurmundsson leikur og syngur og kynnir um leið nýjan hljómdisk sinn. Hlé í miðri dagskrá fyrir veitingar og spjall. Aðgangur ókeypis.
 
Mánudag 7. nóv.
Kl. 20.00 - Bæjarleikhús
Eldfjall – verðlaunamynd Rúnars Rúnarssonar. Leikstjórinn ræðir við bíógesti að lokinni sýningu.  
 
13.00 – 16.00   Opið á söfnum og sýningum laugardag og sunnudag. Bókasafn Vestmannaeyja þó aðeins opið á laugardeginum.