Málverkasýning í Einarsstofu

19.10.2011
Nú stendur yfir sýning listamannsins Konstantinos Zaponidis "A dream come true" í Einarsstofu Safnahúsinu.
Konstantinos er fæddur í Kastoria á norður Grikklandi. Hann hefur lagt stund á listir frá 15 ára aldri en þetta er fyrsta einkasýning hans. Á sýningunni eru bæði málverk og íkonar og er sýningin opin mánudaga til fimmtudaga frá 10 til 18; föstudaga frá 10 til 17, laugardaga frá 11 til 14 og sunnudaga frá 13 til 16