Sumarlesturinn

12.10.2011

Nú hefur starfsfólki Bókasafnsins loksins tekist að telja saman allar bækurnar sem krakkarnir lásu í sumarlestrarátakinu.

Keppnin var mjög hörð og spennandi og lásu krakkarnir hvorki meira né minna en 276 bækur. Það verður spennandi að sjá hverjir hafa lesið mest en úrslitin skal ég setja hér inn um leið og þau hafa verið gerð kunn.