Draumalandið - Sjálfshjálparbók
29.11.2006Bókasafn Vestmannaeyja býður til fyrirlestrar
TILEFNI af útkomu bókarinnar Draumalandið - Sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð heldur höfundurinn, Andri Snær Magnason, fyrirlestur í Alþýðuhúsinsinu í Vestmannaeyjum laugardaginn 2. desember kl 17.00.
Segja má að Andri Snær fari á kostum þar sem hann ræðst beint að kjarna stærstu mála samtímans og hrærir upp í heimsmyndinni með leiftrandi hugmyndaflugi.
Í fyrirlesturinn verður gegnið út frá aðstæðum í Vestmannaeyjum.
Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.