Jól á Byggðasafni og Bókasafni

02.12.2005

Söfnin opin um helgina. Hvernig voru jólin og undirbúningurinn hérna áður fyrr. Frásagnir og upplestur á jólaefni á laugardag og prestur Landakirkju kemur á sunnudag og flytur erindi um jólin. Hvetjum alla til að koma og eiga notalega stund í söfnunum.

Helgina 3. og 4. desember verður handverksmarkaður haldin í Safnahúsi. Að því tilefni verða Bókasafnið og Byggðasafnið opið laugardag frá 13.00 til 18.00 og á sunnudegi frá kl. 14.00 til 18.00.

Laugardaginn kl. 16.00 verða frásagnir af jólum áður fyrr og lesið jólaefni.

Sunnudaginn kl. 16.00 heimsækir prestur Landakirkjau Safnahús og flytur stutt erindi um jólin.