Haraldarvaka í Einarsstofu.

28.09.2011
100 ára fæðingardags Haraldar Guðnasonar bókavarðar verður minnst í Einarsstofu í anddyri Safnahúss sunnudaginn 2. október kl. 15.
 
Í tilefni dagsins verður ókeypis aðgangur í Sagnheimum – Byggðasafni á sunnudeginum 11-17. Vetraropnun hefst 3. október og er þá opið á laugardögum 13-16 og eftir samkomulagi.
 
 
 
Dagskrá:
Helgi Bernódusson skrifstofustjóri alþingis minnist vinar og samstarfsmanns
Viðtal úr safni Stjána á Emmunni við Harald og Ille konu hans.
Sigríður Ákadóttir ræðir um afa og ömmu.
Stefán Sigurjónsson skólastjóri segir frá Rotarymanninum Haraldi.
Bragi Þ. Ólafsson fagstjóri handritadeildar Landsbókasafnsins fjallar um mikilvægi þess að varðveita handrit og skjöl heimabyggðar.
Kitty Kovács organisti Landakirkju og fiðluleikarinn Balázs Stankowsky sjá um tónlistarflutning
Dagskránni mun ljúka kl. 17 með óvæntum dagskrárlið.
 
Sérfræðingur frá handritadeild Landsbókasafns verður í Einarsstofu 11-17 til að hjálpa til við að hefja kerfisbundna leit að handritum í einkaeigu. Þeir sem luma á einhverju handrituðu eru hvattir til að líta við á safninu á sunnudaginn.
 
Allir hjartanlega velkomnir.
 
Dagskráin er samstarfsverkefni starfsmanna Safnahúss og Söguseturs 1627 og er hluti af röð menningarviðburða í Safnahúsi sem styrkt er af Menningarráði Suðurlands.