Allir lánþegar fá bók að gjöf í dag.

14.04.2011
Hver sá sem kemur og tekur bók eða annað efni að láni fær pakka að gjöf. Við vonumst til að gefa a.m.k 100 pakka í dag. Í pökkunum eru bækur, barnabækur fyrir þá sem yngri eru og fullorðinsbækur fyrir aðra.
Við höfum valið bækurnar úr hópi gjafabóka sem hafa borist safninu á síðasta ári en Vestmannaeyingar hafa verið drjúgir við að bera að safninu undanfarið.
Við reynum allt til að nýta bókagjafir og þessi leið sem hér er farin er enn ein leiðin.