Sektarlaus vika á Bókasafni Vestmannaeyja!

29.11.2021
Sektarlaus vika á Bókasafni Vestmannaeyja!
 
Í aðdraganda jóla og við upphaf nýs árs huga margir að syndum liðinna daga.
Bókasafn Vestmannaeyja vill hjálpa til við að lýsa leið til betrunar með því að bjóða upp á „sektarlausa viku” 29. nóvember – 10. desember.
Unnt er að skila bókum á safnið á opnunartíma eða í póstkassa við útidyr, án eftirmála. Kærkomið tækifæri til að gera hreint fyrir sínum dyrum og hefja nýtt ár með gleði hins syndlausa lánþega.