Jólasveinaklúbbur Bókasafns Vestmannaeyja í Safnahúsinu 20. desember.

21.12.2018

Jólasveinaklúbbur Bókasafns Vestmannaeyja með jólaskemmtun í Safnahúsinu fimmtudaginn kl. 16-17.

Jólasveinaklúbbur Bókasafns Vestmannaeyja býður öllum börnum bæjarins til jólaskemmtunar í Safnahúsinu fimmtudaginn 20. desember kl. 16-17.

Dagskráin hefst með upplestri Einsa Kalda á hinni sígildu bók Þegar Trölli stal jólunum, öll börn sem mæta geta tekið þátt í happdrætti, dansað verður í kringum jólatré við undirleik Jarls Sigurgeirssonar og jólasveinninn ætlar að kíkja í heimsókn með glaðning.

Þetta er í þriðja sinn sem við bjóðum upp á Jólasveinaklúbbinn og er hann hugsaður sem framlag Bókasafnsins til aukins lestur yngri barna.

 

Allir hjartanlega velkomnir

 

Myndirnar eru frá dagskránni í fyrra.