Kynnir nýútkomna bók sína ,, Where´s God "

Hugleikur með myndlistarsýningu á Safnahelgi

04.11.2016
 Föstudaginn 4. nóvember mun Hugleikur Dagsson opna sýningu í Einarsstofu , Safnahúsi í Vestmannaeyjum kl 18:00.  Sýningin er haldin í tilefni af útgáfu bókarinnar ,, Where´s God " sem er nýjasta teikniverk Hugleiks Dagssonar .  Hér sameinar hann áhuga sinn á Valla úr ,, Hvar ertu Valli ?? " bókunum og  vangaveltur sínar um tilveru Guðs. Hér getur lesandinn sjálfur spreytt sig á þessari leit sem svo margir spekingar og fræðingar hafa lagt í.  Hvar er Guð eiginlega ? Segðu  mér ! 
Sýningunni lýkur 30. nóvember.