Dagskrá Safnahelgar í Vestmannaeyjum 5-8 nóv

04.11.2015
 Dagskrá Safnahelgar í Vestmannaeyjum 5-8 nóv

Fimmtudagur 5. nóv.:
Kl. 18:00 Stafkirkjan á Skansinum. Setning hátíðar, sr. Guðmundur Örn Jónsson. Snorri Jónsson kynnir nýjan disk sinn, Nornanótt en þar er að finna 12 lög við ljóð Snorra. Sæþór Vídó og Sunna Guðlaugsdóttir flytja valin lög af disknum.

Kl. 21:00 Kaffi Kró. Blítt og létt með ómissandi Eyjakvöld og allir syngja með.

Föstudagur 6. nóv.:
Kl. 16:00 Sjóminjasafn Þórðar Rafns. Opnun á ljósmyndasýningu á sjávartengdum mannlífs- og atvinnulífsmyndum Sigurgeirs í Skuld sem ekki hafa komið fyrir almenningssjónir áður.

Kl. 17:00 Einarsstofa Safnahúsi. Opnun á sýningunni 100 Edinayjalistakonur í 100 ár. Um er að ræða samsýningu á verkum allt að 100 vestmannaeyskra kvenna í tilefni þess að í ár eru rétt 100 liðin frá því konur fengu fyrst kosningarétt. Á opnun sýningarinnar verður óvænt uppistand með aðkomu þekktustu listakonu Eyjanna.

Kl. 18:00 Alþýðuhúsið. Opnun á sýningu Myndlistarfélags Vestmannaeyja.

Kl. 20:00 Sæheimar. Opnun á sýningu Gunnars Júlíussonar, Hvorki fugl né fiskur. Gunnar sýnir tölvugerðar myndskreytingar þar sem þemað er dýrin á safninu.

Laugardagur 7. nóv.:
Kl. 12:00 Sal Visku í Þekkingarsetri Vestmannaeyja. Skip og stjörnur. Friðrik Ásmundsson fjallar um skip eyjaflotans sem bera stjörnunöfn, Karl Gauti Hjaltason kynnir stjörnurnar sem skipin voru nefnd eftir og Björgvin Björgvinsson ræðir um hugmyndir Stjörnufræðifélagsins um byggingu Norðurljósa- og stjörnuskoðunarstöðvar í Eyjum.

Kl. 13:00 Bókasafn Safnahúsi. Kynning og upplestur á nýjum bókum. Kolbrún Bergþórsdóttir gerir upp bókaárið 2015 með sínum einstaka hætti og Lilja Sigurðardóttir les úr nýútkominni bók sinni, Gildrunni.

Kl. 14:00 Sagnheimar. Landið mitt – ljóðið mitt. Rætur Eyjamanna liggja víða og sumar teygja sig jafnvel til annarra landa.
Eftirtaldar Eyjakonur kynna rætur sínar og flytja ljóð á móðurmáli sínu:
Anna Federowicz – Pólland,
Dagný Pétursdóttir – Thailand,
Evelyn Consuelo Bryner – Sviss,
Jackie Cardoso – Brasilía,
Kateryna Sigmundsson – Úkraína,
Sarah Hamilton – England,
Tina Merete Henriksen – Danmörk.


Kl. 15.00 Betel. Árlegir styrktarfélagatónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja.

Kl. 22:00 Eldheimum. Minnumst Stellu Hauks – Úrval af bestu verkum Stellu Hauks og úrval af vinsælli kvikmyndatónlist. Bíóbandið „vinir Stellu“: Andrea Gylfa, Edvarð Lárusson, Tómas M. Tómasson, Magnús R. Einarsson og Jón Indriðason.

 

Sunnudagur 8. nóv.:
Kl. 14:00 Einarsstofa Safnahúsi. Með Eyjar í hjarta og hjartað í Eyjum, dagskrá með völdum Eyjapeyjum og –pæjum af fastalandinu. Stutt erindi flytja: 
Einar Gylfi Jónsson: Eyjapeyjasögur/minningar af æskufélögum,
Þuríður Bernódusdóttir: Æskustöðvarnar í Eyjum/Borgarhóll og nágrenni,
Katrín Gunnarsdóttir: Þorsteinn í bókabúðinni,
Jón Berg: Gosið og ég,
Helga og Arnór flytja tónlist við hæfi.

Opið í Sagnheimum, Einarsstofu og Sæheimum laugardag og sunnudag kl. 13-16.
Ókeypis inn á Sagnheima og Sæheima í tilefni Safnahelgar.
Bókasafnið opið kl. 13-16, minnum á bókamarkaðinn.

Opið í Eldheimum, Alþýðuhúsinu og Sjóminjasafni Þórðar Rafns laugardag og sunnudag kl. 13.00 – 17.00.