Markmið að draga fram hið ævintýralega líf hans

Unnið að gerð heimildarmyndar um Pál Steingrímsson

27.10.2015
Nú er ætlunin að búa til enn eina heimildarmyndina, að þessu sinni um Pál sjálfan.
   Markmiðið er að draga fram hið ævintýralega líf hans með nýjum viðtölum við Pál, sýna brot úr þeim myndum sem hann sjálfur hefur tekið en líka verða birt skemmtileg myndbrot þar sem hann kemur við sögu og spanna þau myndbrot áratugi.  
 Stefnt er að 52 mínútna mynd fyrir sjónvarp, á hún a vera tilbúin um mitt næsta ár og áætlað að hún verði frumsýnd í Vestmannaeyjum sumarið 2016.