Allir lesa - Landsleikur í lestri

09.10.2014
Miðstöð íslenskra bókmennta og Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO standa saman að nýjum og spennandi landsleik í lestri sem hefur fengið heitið ALLIR LESA.
Landsleikurinn ALLIR LESA fer fram í fyrsta sinn 17. október til 16. nóvember 2014 og lýkur honum því á degi íslenskrar tungu. Þetta er einfaldur leikur sem allir geta tekið þátt í en hann felst í því að þátttakendur skrá lestur sinn í lestrardagbók á vefnum www.allirlesa.is og taka þátt í liðakeppni sem er í svipuðum dúr og t.d. Hjólað í vinnuna. Þau lið sem verja mestum tíma í lestur á keppnistímanum standa uppi sem sigurvegarar. Hægt er að stofna lið með vinnufélögum, vinum, fjölskyldumeðlimum, skólafélögum eða hverjum sem er. Allir lesa er fyrir fólk á öllum aldri, börn sem fullorðna.
 
Leikurinn gengur út á að þátttakendur skrái þá titla sem þeir lesa og þann tíma sem þeir verja í lestur. Þar sem lestrarhraði fólks er mismunandi og háður ótal þáttum er ekki farin sú leið að telja blaðsíður, heldur eru það mínútur sem gilda. Þetta er því ekki hraðlestrarkeppni, fólk getur notið þess að lesa í rólegheitunum.
 
Það skiptir ekki máli hvernig bækur fólk les eða á hvaða formi - prentaðan texta, rafbók eða hljóðbók - allar tegundir bóka eru gjaldgengar í keppninni. Hér er átt við bækur sem innihalda til dæmis skáldskap, fræði, skýrslur eða eitthvað allt annað.
 
Skráning liða á www.allirlesa.is hefst þann 10. október þegar vefurinn verður formlega opnaður.
 
Lestrardagbókin verður áfram opin á vefnum eftir að keppninni lýkur og þar getur fólk haldið utan um eigin lestur allt árið um kring.
 
Eins og áður segir standa Miðstöð íslenskra bókmennta og Reykjavík Bókmenntaborg að ALLIR LESA en styrktar- og/eða samstarfsaðilar eru fjölmargir. Þar má nefna RÚV, Símann, MS, Félag íslenskra bókaútgefenda, Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga, ÍSÍ, Advania, Upplýsingu, Félag fagfólks á skólabókasöfnum og fleiri.