Listvinir Safnahúss

03.10.2013
 bjóða að þessu sinni upp á 
fjölbreytta myndlistarsýningu í samstarfi við Myndlistarfélag Vestmannaeyja. Um er að ræða samsýningu 9 einstaklinga úr félaginu sem er rétt um helmingur félagsmanna. Þeir sem sýna eru: Bjartey Gylfadóttir, Brynhildur Friðriksdóttir, Erna Ingólfsdóttir, Gíslína Dögg Bjarkadóttir, Kristín Garðarsdóttir, Laufey Konný Guðjónsdóttir, Sigrún Þorsteinsdóttir, Steinunn Einarsdóttir og Þuríður Georgsdóttir.
 
Verkin eru unnin með margvíslegum aðferðum með akríl, vatnslitum og olíu.
Sýningin opnaði í Einarsstofu í dag kl. 16 og stendur fram til miðvikudagsins 9. október.
Opið verður á opnunartíma Safnahúss sem hér segir:
Föstudagurinn 4. október 10:00-17:00
Laugardaginn 5. október 11:00-16:00
Sunnudaginn 6. október 13:00-16:00
Mánudaginn 7. október 10:00-18:00
Þriðjudaginn 8. október 10:00-18:00
 
Boðið verður upp á kaffi og konfekt við opnunina og eru allir hjartanlega velkomnir.