Mánudaginn 9. september kl. 12:00 - 13:00

Súpa og saga í Sagnheimum

05.09.2013
 Í tilefni af útgáfu bókarinnar "Íþróttafélagið Þór Vestmannaeyjum í 100 ár" mun Sigurgeir Jónsson kynna nýútkomna bók og Áki Heinz mun lesa stutta ferðasögu.
 Boðið verður upp á súpu og brauð auk þess sem bókin verður til sölu á safninu.
Þegar dagskránni lýkur verður opnaður sýningarbás í Sagnheimum - Byggðasafni á nokkrum munum úr eigu félagsins. Verður sýningin opin í vetur.
 
Gaman væri ef gestir mættu í treyjum eða öðru merktu félaginu.
 
Dagskráin er sttyrkt af Menningarráði Suðurlands og Safnaráði.