Fjallað um sögu mormóna í Golfskálanum.

27.06.2013
 
Laugardaginn næsta, 29. júní kl. 11 - 13 verður boðið upp á notalega stund í Golfskálanum. Þar verður unnt að fá súpu og kaffi gegn vægu verði og hlýða á erindi um örlög og ævi sumra þeirra Vestmannaeyinga sem fluttust til Utah á síðari hluta 19. aldar. Tilefnið er að í ár eru liðin 160 ár frá því að mormónar stofnuðu kirkju sína á Íslandi, nánar tiltekið í Herjólfsdal í Vestmannaeyjum 19. júní 1853. 
 
 Meðal gesta er Mark Geslison sonarsonur Sigmundar Gíslasonar úr Jónshúsi og Sveinsínu Árnadóttur frá Löndum er bæði yfirgáfu Vestmannaeyjar börn að aldri ásamt foreldrum sínum. Mark hefur skapað sér nafn sem heimsþekktur fiðluleikari en kemur að þessu sinni fram með fjölskyldu sinni sem öll er á kafi í þjóðlagatónlist. Munu þau flytja á íslensku ljóð, m.a. eftir einstaklinga sem héðan fluttust á sínum tíma. Er ekki að efa að það verður forvitnilegt. Að loknu ávarpi Elliða Vignissonar bæjarstjóra verða flutt fjögur stutt erindi á ensku og íslensku. Richard Manning fjallar um afa sinn Ingimund Jónsson og Einar Eiríksson frá Vestmannaeyjum; Fred Woods fjallar um Loft Jónsson frá Þorlaugargerði; Siguróli Sigurðsson fjallar um rannsóknir sínar á upphafi mormónskunnar í Vestmannaeyjum og Guðrún Bjarkadóttir fjallar um "fólkið sitt" en hún er afkomandi Árna Árnasonar frá Vilborgarstöðum og Jóhönnu Lárusdóttur frá Búastöðum. Dagskráin er öllum opin en um 100 mans hafa þegar boðað komu sína, bæði frá fastalandinu og Utah.