Þakkir vegna Ljósmyndadags Safnahúss.

14.06.2013
Sérstakur ljósmyndadagur hefur verið í Safnahúsi Vestmannaeyja á fimmtudögum kl. 11 - 16 þar sem bæjarbúar hafa aðstoðað okkur við að nafngreina einstaklinga á ljósmyndasöfnum í eigum safnsins, einkum úr söfnum Óskar Björgvinssonar og Kjartans Guðmundssonar.
Viðtökur hafa verið afar góðar og þökkum við hjartanlega fyrir áhugann.
Nú tökum við okkur hvíld í sumar og hittumst hress aftur í haust.
 
Með sumarkveðju úr Ljósmyndasafni Vestmannaeyja.