Sumarlestur á Bókasafninu 2012

15.08.2012
Það hefur nú verið frekar rólegt á Bókasafninu eftir Þjóðhátíð. Þau halda okkur þó við efnið lestrarhestarnir sem taka þátt í sumarlestri á Bókasafninu 2012.
Starfsfólkið hefur, nánast vikulega, þurft að finna meira hillupláss fyrir bókakilina.
Á heimasíðu Bókasafnsins undir "Sumarlestur" má sjá myndir af öllum bókunum sem krakkarnir eru búin að lesa og þar er einnig hægt að fylgjast með hillunum fyllast einni af annari.
Sumarlestur Bókasafns Vestmannaeyja stendur til föstudagsins 31.ágúst og þá þurfa bókaormarnir að skila inn lestrarhestunum sínum.