Sjómannadagshelgin 1.-3.júní 2012 í safnahúsi

31.05.2012
Dagskrá í tilefni af væntanlegri útgáfu á úrvali verka Árna Árnasonar símritara frá Grund. Styrkt af Menningarráði Suðurlands.
Föstudagurinn 1. júní kl. 16 í Einarsstofu, Safnahúsi
Opnun ljósmyndasýningar Kristins Benediktssonar - Frá miðum til markaða.Myndirnar sýna þverskurð af sjómennsku, vinnslu á saltfiski og öðrum gæðaafurðum
sem framleiddar eru á sjó og landi auk þess að gefa innsýn í hvert afurðirnar fara á erlenda markaði.
Sýningin verður opin alla sjómannadagshelgina kl. 11 – 17.
 
Laugardagur 2. júní kl. 15 á bryggju Sagnheima, byggðasafns:
Guðgeir Matthíasson segir sögur úr sjávarplássi.
Arnfinnur Friðriksson tekur nokkur sjómannalög á nikkuna.
Sunnudagur 3.júní kl. 14:30 og 16:30 í Sagnheimum, byggðasafni:
Spilaðar valdar hljóðupptökur úr fjársjóðskistu Árna símritara af Sjómannadagsskemmtun árið 1956. M.a. má heyra Baldur Hólmgeirsson syngja bráðskemmtilegar vísur Ása í Bæ um skipstjóra Eyjamanna.