Laust starf á Bókasafninu

09.09.2011
Laust starf á Bókasafninu.
 
Laust er til umsóknar starf bókavarðar við Bókasafn Vestmannaeyja. Um er að ræða 50% starf og er vinnutími eftir hádegi. Umsóknarfrestur er til 15. sept. nk. Æskilegt að viðkomandi hefji störf sem fyrst. Vinsamlegast athugið að eldri umsóknir þarf að endurnýja. Allar nánari upplýsingar veitir forstöðumaður safnsins í síma 488 2040 eða á staðnum.