Hvað verður hann stór?

24.08.2011
Bókaormurinn er orðinn risastór og hlykkjast um alla barnadeildina og skríður nú eftir loftinu.
Eins og allir krakkar vita er nú skólinn byrjaður og því kominn tími til að klára sumarlestrarátakið. Á föstudaginn er síðasti séns að skila inn lestrarhestum og lestrardagbókum og vonandi verður ormurinn þá búinn að bíta í halann á sér. Krakkarnir eru nú búnir að lesa hátt í 300 bækur sem hlýtur að teljast ótrúlegur árangur og ég vona að við náum 300 fyrir föstudag.
ÁFRAM BÓKAORMAR!!!!!!