Bókasafnsdagurinn

Dagskrá

13.04.2011
Dagskrá Bókasafns Vestmannaeyja á BÓKASAFNSDAGINN 14.apríl 2011.
  • Gestir okkar er koma á safnið á bókasafnsdeginum og taka bók eða annað safnefni fá bók að gjöf frá safninu. Búið er að pakka bókinni inn.
  • Bókasafnsdagurinn er sektarlaus dagur, boðið upp á aflausn gamalla bókasynda.
  • Nýir lánþegar fá ókeypis bókasafnsskírteini er gildir í eitt ár.
  • Samkeppni um bestu bók safnsins hefst og stendur út maí. Nánar kynnt á safninu.
  • "Bækur sem þú verður að lesa" listinn verður á staðnum og bækurnar til sýnis og útláns.
  • Auðvitað verður heitt á könnunni og tilvalið að kíkja í nýjustu blöðin eða tímaritin.
 
Við vonumst til að sjá sem flesta