Ný hópavinnuaðstaða

30.03.2011
Sett hefur verið upp hópavinnuaðstaða í Safnahúsinu.
Í gegnum tíðina hefur verið erfitt fyrir hópa að vinna að verkefnum í Safnahúsinu enda er ætlast til þess að algjör þögn sé í Ingólfsstofu. Nú hefur verið ráðin bót á þessu og hópavinnuaðstaða verið sett upp í kjallaranum. Þarna eru 2 sex manna borð og þarna er nemendum frjálst að hafa með sér nesti. Starfsfólk bókasafnsins mun gera það sem í þeirra valdi stendur til að aðstaðan nýtist sem best.